Ný sending af slökkvitækjum og fleiru

Eftir helgi eða jafnvel fyrir helgi eigum við væntanlegan gám upp að húsi. Um nokkurt skeið höfum við ekki átt Ningbo léttvatnstæki eða Ningbo dufttæki en úr því leysist nú.
Ningbo 6 l. léttvatnstæki króm


Við fáum í þessari sending nýja gerð af léttvatnsslökkvitæki 6 lítra með slökkvimátt 21A 144B sem við tökum til prufu. Eins og elstu menn muna þá voru vatnsslökkvitæki úr ryðfríu stáli all vinsæl hér á árum áður. Þó nokkrum fjölda þeirra var breytt í léttvatnstæki hérlendis. Þessi tæki hafa reynst vel og eru nokkuð útbreidd.


Eins fáum við brunaslönguhjólin sem við kynntum hér fyrir stuttu á síðunni. Sjá brunaslönguhjól.

Við fáum mjög takmarkað magn af þessum hjólum í fyrstu sendingunni. Áætlað verð á 3/4" hjóli 25 m. í hvítum skáp er um 57 þús.




Við fáum einnig úðastúta á brunaslönguhjól í nokkrum gerðum á talsvert betra verði en áður og eins 1 1/2" og 2" krana á þurrlagnir PN16.

Við fáum tvær gerðir af neyðarhömrum og beltahnífum í bifreiðar á einstöku verði.

Nokkuð er af búnaði og varahlutum fyrir slökkvitækjaþjónustur eins og plastinnsigli, öryggispinnar ofl.ofl.

Við reynum að kynna eitthvað af þessu með myndum á næstunni.