Nýir starfsmenn hjá okkur

Nú um áramótin fengum við til liðs við okkur tvo nýja starfsmenn í stað tveggja sem hurfu til annarra starfa.
Guðrún Ástráðsdóttir tekur við starfi Viktoríu Kristjánsdóttur sem hættir hér eftir vel á þriðja áratug.  Við óskum henni velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi.

Guðrún mun sjá um skriftstofustjórn, innflutning og gjaldkerastörf að hluta. Hún er ekki ókunn okkur, þar sem hún hefur starfað hér í húsinu um áratuga skeið.

Reynir Einarsson tekur við af Hafsteini Guðjónssyni en hann fer til annarra starfa þó ekki langt frá okkur. Við óskum honum alls hins besta í nýju starfi. Reynir kemur frá svipuðum starfsvettvangi en hann mun starfa hér sem sölufulltrúi og sinna sölu og þjónustu á öllum okkar vörum.

Við bjóðum þau hjartanlega velkomin og um leið óskum við eftir að þið gefið þeim góðan tíma og tækifæri til að kynnast vel starfsemi okkar svo þeir geti veitt ykkur góða þjónustu.