Nýjar vörur hjá Rafborg

Nýjar vörur eru komnar hjá Rafborg m.a er það útilegulugtin 2009, rafhlöðumælar og svo öryggis eða björgunaráhald til að hafa í bílnum Fimm í einu eins og það er nefnt.
Hér kemur fréttin.

Þessar vörur teljum við vera á mjög góðu verði. Við eigum svo væntanlegar fleiri vörur með haustinu og má þar nefna vasaljós með segulstáli en þetta er díóðuljós með þremur díóðum sem verður á ótrúlega góðu verði. Höfuðljós á frábæru verði og meira af Pairdeer ljósunum.

Á þessum stutta tíma sem Pairdeer rafhlöður hafa verið í sölu hér hafa viðrtökur verið frábærar enda verðið einstakt.



Fyrst viljum við nefna útilegulugtina 2009 en hún er græn að lit með 9W flúorperu. Með fylgja rafhlöður. Við fáum talsvert magn svo við munum geta afgreitt fljótt og vel. Smásöluverð er kr. 2.475 og takið eftir með rafhlöðum D stærð. Rofi í loki. Tekið er við pöntunum núna. Vörunúmer 300110.




Tvær gerðir af rafhlöðumælum koma um leið en um þá má lesa hér. Smásöluverðið á 280235 er kr. 935






 


og á þessum gráa sem ber vörunúmerið 280240 er kr. 1.292.













Björgunaráhaldið 5 í 1 (fimm í einu ) er verkfæri með seglustáli til að festa á bílinn, ljós, blikkljós, beltahnífur og rúðubrjótur. Við munum fá áhaldið gult að lit. Verkfærið er lítið um sig, vatnsvarið og lýsir á nýjum rafhlöðum (2 stk. AA) í allt að 72 klst. Ljósið er díóðuljós.

Smásöluverðið er kr. 2.084 og vörunúmerið er 300182