Nýr starfsmaður Hafsteinn Guðjónsson.

Við höfum fengið nýjan starfsmann en Hafsteinn Guðjónsson hóf störf hjá okkur á föstudag í síðustu viku.

Koma Hafsteins er ekki til að leysa annan af heldur viðbót þar sem hér er og hefur verið nóg um verkefni undanfarið. Það svo að vart hefur verið hægt að hafa undan svo öllum líki. 

Sinn tíma mun taka að setja Hafstein inn í okkar mál og biðjum við viðskiptavini að sýna því biðlund og skilning. Hafsteinn er skipstjórnamenntaður og hefur starfað við sölumennsku og þjónustu um all langt skeið. 

Það er von okkar og ósk að hann falli í vel inn í hóp okkar og viðskiptavinum muni vel við líka.