Packexe Smash varnarfilmur og búnaður

Eitt af því merkilegra sem við sáum á sýningunni Rauða hananum var Packexe SMASH® búnaður til að leggja yfir rúður þegar unnið er við björgun úr bílflökum.
Við brugðumst skjótt við og pöntuðum nokkur sett af þessum búnaði ásamt auka plastlímfilmum til að vera með á lager.

Packexe SMASH® sjálflímandi plastfilman treystir rúður svo hraðar gangi að bjarga úr bílflökum.

Ver björgunarlið og sjúkling frá glerbrotum og glerryki en sýnileiki samt áfram um rúður.

Packexe SMASH® getur haldið rúðugleri á sínum stað við björgun. Reynslan sýnir að Packexe SMASH plastlímfilmurnar tvöfalda styrk rúðuglersins og draga úr hættu á óvæntu rúðubroti.

Við bjóðum slökkviliðinum þessi fyrstu Packexe SMASH® settin á sérstöku verði eða

374200 Packexe SMASH® Kit eða sett er á kr. 46.025 án VSK.

374202 Packexe SMASH® Refill plaslímfilma (50m.) á kr. 7.088 án VSK.
374204 Packexe SMASH®
(Hand) plastlímfilma (50m.) á kr. 7.088 án VSK.




Hvert sett inniheldur rúlluskammtara, Packexe SMASH® gataða plastrímfilmu á rúllu fyrir skammtara 312mm x 50m., Packexe SMASH® plastlím filmu á kefli ógataða 312mm x 50m. en sú límfilma er aðallega notuð til varnar þegar framrúða er brotin, límfilmuskurðarhníf, öryggishníf, gúmmísköfu, tusku og poka utan um allt.

Með hverjuPackexe SMASH® setti fylgir svo DVD diskur sem sýnir notkun og notkunarleiðbeiningar ásamt bæklingi sem sýnir líka notkun stig af stigi.

Packexe SMASH® plastlímfilman í skammtarann er götuð til að auðvelda ásetningu. Skammtarinn er búin tveimur keflum sem þrýsta filmunni að rúðunni og svo er það rifjár sem sker filmuna. Skiptir ekki máli þó rigni þar sem keflin þrýsta bleytu frá.

Vel kemur fram í DVD myndinni hvernig nota skal.

Hér má sjá notkun á myndum

Hér má sjá hluta úr kvikmynd um notkun

Heimasíða framleiðanda


     


.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....