Red 716 Pro-Lite bakbrettin komin og farin

Við vorum að fá inn á lager Red 716 Pro-Lite bakbretti sem við buðum á hagstæðu verði í nóvember síðastliðnum. Um takmarkað magn var að ræða en við buðum þessi bretti með 35% afslætti.
716R Bakbretti

Við fengum góða svörun og gátum boðið enn betur eða 15% afslátt til viðbótar. Öll brettin voru seld strax og erum við að afgreiða þau nú til kaupenda.

Hluti fór til Flugstoða ohf. til viðbúnaðar um land allt.

Þessi bretti eru rauð að lit og var hægt að fá þau með og án pinna fyrir ólar. Með þessum brettum fengum við hvítar ólar með plast sylgju.

Pro-Lite 716 bakbrettin eru létt aðeins tæp 6 kg. Þau eru 183 sm. á lengd, 41 sm. á breidd og 6 sm. á þykkt. Smíðuð sem ein heild þ.e. engin samskeyti. Þola verulegan þunga (ótakmarkaðan).



Hítar ólar með plastsylgju, þrjár á hvert bretti.
Sextán handföng 6 x 13 sm. Mjókka upp úr 41 sm. í 36 sm. Íhvolf lögun styrkir og minnkar geymslupláss. Tvö borð staflast á innan við 10 sm. Neðri hluti beygist aðeins til að auðvelda því að koma bretti fyrir við þröngar aðstæður.

Umlykur neðri hluta líkamans á sem réttastan hátt. Fer vel með sjúklinginn (flotkraftur). Hægt að nota allar gerðir höfuð eða hálskraga á brettin. Fáanleg með festipinnum fyrir belti.