Resque 42 stuðningsbúnaður á kynningarverði

Á Rauða hananum skoðuðum við stoðir og annan stuðningsbúnað sem nefnist Resque 42, en hann er úr kelvarstyrktum efnum og mun öflugri og léttari, en sá sem við höfum boðið áður.
Við eigum eftir að setja inn upplýsingar á sér vefsíðu um þessar stoðir en eins og áður kemur fram þá eru þær mun léttari, en þær gerðir sem við höfum áður boðið. Samsetta efnið í þrýstistöngunum er kelvarstyrkt og m.a. notað í flugvélasmíði.

Rescue 42 er í notkun í 19 af 20 stærstu borgum Bandaríkjanna og er skilgreint í fyrsta sæti af þeim búnaði, sem býðst til að tryggja stöðguleika ökutækja í slysum og í björgun við þröngar og erfiðar aðstæður, þar sem tíminn skiptir máli.

Framleiðandinn veitir 10 ára ábyrgð, þrýstistangirnar ryðga ekki, leiða ekki rafmagn eru mun léttari og um leið miklu öflugri.

Fjórum sinnum öflugri, en hefðbundnar þrýstistangir úr stáli. 8.165 kg vinnuhleðsla og hámarkshleðsla 16.330 kg.

Vega helmingi minna, en stálstangir, en styttri gerðin vegur 8 kg. og sú lengri 12 kg. með fylgihlutum.

Ýmsar samanburðar töflur eru fyrirliggjandi hjá okkur en þar kemur fram að það er staðreynd að Resque 42 þrýstistangirnar geta borið fjórum sinnum meiri þyng en þær gerðir sem við þekkjum til og vega helmingi minna.

Boðið er upp á ýmis sett og erum við að skoða innflutning á nokkrum gerðum setta. Við eigum kost á að kaupa tvö sett á sérstöku kynningarverði og ráðum hvaða sett það eru. Við hvetjum þá sem áhuga hafa að hafa samband við okkur sem fyrst .

Helst erum við að skoða svokallað Telecrib Strut Truck sett, sem í eru tvær stuttar og tvær langar þrýstistangir 170 og 257 sm. langar, tvö strekkibönd, tjakkhaus, A-samfesting, stungufótur, krókar, karabína, pinnar í stangir, aukapinnar og taska fyrir búnaðinn og myndbandsdiskur með notkunarleiðbeiningum.

Verðið á Truck setti er kr. 646.597 án VSK. Kynningarverð kr. 484.948 án VSK.

Hitt settið sem við erum að skoða er TeleCrib Strut Engine sett sem er samskonar og að ofan en með sitthvora þrýstistöngina stutta og langa og ekki A-samfestingu.

Verðið á Engine setti er kr. 350.587 án VSK. Kynningarverð kr. 262.940 án VSK.

Strut Jack Tjakkur er á kr. 124.879 án VSK. Kynningarverð kr. 93.659 án VSK.


Hér má lesa um fleiri sett og sjá myndir af fylgibúnaði.

.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....