Reykskynjari - slökkvitæki - eldvarnateppi !

Meirihluti íslenskra heimila sinnir eldvörnum ekki nægilega vel samkvæmt könnun sem gerð var fyrir Eldvarnabandalagið og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS). Hún sýnir að enginn eða aðeins einn reykskynjari er á um þriðjungi heimila. Innan við helmingur heimila hefur allan nauðsynlegan eldvarnabúnað, það er reykskynjara, slökkvitæki og eldvarnateppi. Leigjendur búa við miklu verri eldvarnir en þeir sem búa í eigin húsnæði. Þá sýnir könnun Capacent að á þremur af hverjum fjórum heimilum hefur ekkert verið rætt um hvernig bregðast ætti við eldsvoða.
 


Algengt verð á reykskynjara er um 1.500 krónur og uppsetning tekur fimm til tíu mínútur. Vælið í reykskynjara getur ráðið úrslitum um hvort fólk lifir eða deyr þegar eldur kemur upp.
 
Eldvarnaátak LSS um allt land
LSS og Eldvarnabandalagið hafa tekið höndum saman um að vekja athygli almennings á mikilvægi eldvarna. LSS og slökkviliðin í landinu heimsækja börn í 3. bekk grunnskóla um allt land dagana 19.-30. nóvember og veita þeim og fjölskyldum þeirra fræðslu um eldvarnir. Öll börnin fá að gjöf söguna af Brennu-Vargi og slökkvihetjunum Loga og Glóð og gefst kostur á að taka þátt í Eldvarnagetrauninni. Samkvæmt könnun Capacent telja um 99% aðspurðra átak LSS mikilvægt.
 
Handbók heimilisins um eldvarnir kemur út
Eldvarnabandalagið gefur í dag út ítarlegt fræðsluefni um eldvarnir og verður því dreift í talsverðu  upplagi. Það verður einnig aðgengilegt á vefsíðum þeirra sem standa að bandalaginu. Þá sendir Eldvarnabandalagið bréf um eldvarnir til allra heimila í landinu í næstu viku. Það hyggst einnig beita sér fyrir því að stjórnvöld geri strangari kröfur um eldvarnir á heimilum, meðal annars um að leigusölum verði gert að tryggja lágmarks eldvarnir í leiguhúsnæði.
 
Helstu niðurstöður Capacent: Eldvörnum mjög ábótavant
Með þessum aðgerðum vilja Eldvarnabandalagið og LSS stuðla að auknum á heimilum enda sýnir könnun Capacent að stór hluti heimila þarf að huga miklu betur að eldvörnum. Könnunin var gerð 21.-27. október síðastliðinn. Helstu niðurstöður hennar eru þessar:

  • 4% heimila eru án reykskynjara en athygli vekur að meirihluti þeirra segist eiga óuppsettan reykskynjara. Á öðrum 28% heimila er aðeins einn reykskynjari. Eindregið er mælt með tveimur eða fleiri virkum reykskynjurumá hverju heimili.
  • Slökkvitæki er á um 68% heimila. Það er nokkur aukning frá sambærilegum könnunum 2006 og 2008.
  • Aðeins um 57% heimila segjast eiga eldvarnateppi. Mælt er með því að hafa eldvarnateppi á sýnilegum stað í eldhúsi.
  • Tæplega 45% segjast vera með allt í senn reykskynjara, slökkvitæki og eldvarnateppi en það teljast vera lágmarks eldvarnir á heimili.

Ofangreint er af heimasíðu Brunavarna Austur Húnvetninga.


.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....