Scott Health and Safety sýndi evrópskar útfærslur á Scott tækjunum

RAUÐI HANINN 2005

Scott Health and Safety sýndi evrópskar útfærslur á Scott tækjunum en Scott er nú í eigu Tyco sem á einnig Sabre Com frameiðanda Sabre reykköfunartækja. Evrópska útfærslan sem fylgir EN staðli er sambland af Scott og Sabre m.a. er maski frá Sabre. Í boði eru nokkrar gerðir eins og AirPack Fifty sem við þekkjum vel, Propack, Contour, Iris með Sabre maska og innbyggðu fjarskiptakerfi. Fjarskiptakefið er frábrugðið fjarskipakerfum hjá öðrum framleiðendum þar sem setja þarf upp endurvarp en Scott notar hverja stöð sem endurvarp þannig að hver sá sem er með stöð er endurvarp um leið.

 

 

Hér má aftur á móti sjá einn hæfileikaríkan og fjölhæfan sem hitti framliðna þekkta konu á sýningarbás Interspiro en þeir voru ásamt Trelleborg eiturefnabúningaframleiðandum með sameiginlegan bás. Ekki er verra að hitta slíka konu á bás þar sem verið er að sýna reykköfunartæki ef grípa þarf til þeirra.
   

Skoðið frekari upplýsingar um bestu tækin hér.