Slökkvibifreiðin farin heim á Fáskrúðsfjörð

Í gær var ekið sem leið lá austur á Fáskrúðsfjörð á slökkvibifreiðinni og áð á nokkrum stöðum eins og Höfn, Djúpavogi og Breiðdalsvík. Móttökunefnd frá Stöðvarfirði tók á móti okkur í Kambanesskriðum og svo liðið á Fáskrúðsfirði þegar við nálguðumst. Ekið var svo með bláum ljósum í bæinn að nýrri og stórglæsilegri slökkvistöð.

Sjá myndir.