Slökkviduft á betra verði

Sökum verulegrar hækkunar á slökkvidufti höfum við leitað til annars birgja og getum nú boðið sambærilegt slökkviduft og við höfum áður verið með en á lægra verði.
Við munum verða með tvær gerðir þ.e. ABC og BC duft frá þessum nýja birgja en fyrsta sendingin er eingöngu af ABC gerð.

Mikil auking hefur verið í sölu á ABC slökkvidufti og munum við leggja áherslu á að vera með ABC duft frá þessum framleiðanda. Við verðum áfram með ABC, BC og D duft frá öðrum birgjum en það duft er á hærra verði.

Sú gerð sem við munum leggja áherslu á er ABC40%MAP sem er á slökkvitæki með afkastagetu 34A og 233B. Duftið er blátt að lit og kemur í 25 kg. pokum sem eru svo í kössum.