Slökkvilið Akureyrar fær Cutters Edge keðjusög

Slökkvilið Akureyrar fær Cutters Edge keðjusög. Í dag sendum við frá okkur Cutters Edge keðjusög af gerðinni CE-2171RS en þetta er fyrsta sögin sem við seljum af þesssari gerð. Þessar sagir eru sérstaklega gerðar fyrir slökkvilið og björgunarsveitir og sérstaklega áreiðanlegar við slæmar aðstæður.
Cutters Edge CE-2171-RS
Keðjan er með varnarhlíf stillanlega til að stilla dýpt þess sem saga á og verja notanda. Sögunardýptin er rúmir 20 sm. eða 20". Stýring úr heilu stáli sem stýrir sögun á sem skemmstum tíma.


Hemill er á keðju sem stöðvar keðjuna á 1/20 úr sekúndu. Verði hún fyrir höggum stöðvast keðjan. Stillanlegt.

Loftsíun er fjögurra þrepa svo vinna megi með sögina við verstu aðstæður í reyk og sóti. Allt viðhald er einfalt og eftirlit er auðvelt og auðvelt að komast að.

Cutters Edge CE-2171-RS
Auðvelt að setja í gang. Rofi alltaf á ON til að koma í veg fyrir að blöndungur yfirfyllist. Innsog einfalt og stillist fast strax.  Tankar fyrir smurolíur fyrir keðju og vél eru hafðir það stórir svo koma megi í veg fyrir að sögin sé keyrð þurr. Fyrr verður hún eldsneytislaus.

Handfang stamt og sérstök vörn frá sagi eða spænum til hlífðar notanda og vél. Hægt er að létta á vél til að auðvelda gangsetningu. Í handfangi eru demparar til að draga úr höggum.

Vélin er rúm 5 hestöfl eins strokka tvígengis vél. Þyngd um 10 kg. Sjá tækniupplýsingar.

Fleiri gerðir eru fáanlegar og við hvetjum ykkur til að skoða heimasíðu Cutters Edge.