Slökkvilið Akureyrar fær Tohatsu dælu

Slökkvilið Akureyrar er þessa dagana að fá Tohatsu dælu af gerðinni VC72AS.


Dælan afkastar miðað við 8 bara þrýsting og 3ja m. soghæð 1.300 l/mín. Hún vegur aðeins 85 kg. og er tiltölulega fyrirferðalítil. Vélin er 40,8 hestöfl og er tvígengisvél. Hún er búin einu 2 1/2" úttaki og einu 4" inntaki. Handstart og rafstart og snúningssogdæla. Er aðeins 6 sek. að sjúga úr 3ja m. hæð.  Við eigum fyrirliggjandi dælur á lager af þessari og öðrum gerðum núna. Sjá frekari upplýsingar.