Slökkvilið Borgarfjarðardala fær Rosenbauer Otter brunadælu

Slökkvilið Borgarfjarðardala fær nú í janúar Rosenbauer Otter lausa brunadælu með Briggs & Stratton 18 hö. 2ja strokka fjórgengis bensínvél með rafstarti.


Þetta er einsþrepa miðflóttaaflsdæla með handvirka sogdælu. Inntak er af stærðinni Storz B 2 ½”. Eitt B 2 ½” úttak. Afköst eru 1.000 l/mín við 4 bar., 800 l/mín við 5 bar. eða 600 l/mín við 5 bar. Þyngd um 66 kg. tilbúin til notkunar.

Fimm slíkar dælur eru seldar af okkur hérlendis og um 130 stk. í Noregi.

Þessar gerðir eru einnig fáanlegar með díeselvél og bensínvél með rafstarti. Sjá nánar frétt frá árinu 2002 um þessar og aðrar lausar Rosenbauer brunadælur.