Slökkvivagnar á lager

Við erum nýkomnir með kolsýruvagna á hjólum á lager í stærðunum 9 kg. og 23 kg. en nokkur eftirspurn hefur verið eftir þessum stærðum.  Þeir eru útbúnir með slöngu og horni. Minni gerðin er með handfangsloka en sústærri með skrúfuðum loka. Verð þessara vagna er mjög gott og hafa sumir kaupendur nýtt þessa vagna til að útbúa kolsýrukerfi um borð í skip og báta.


Eins erum við með eins og áður 50 kg. ABC duft vagna á hjólum á lager en jöfn og þétt eftirspurn er eftir þessari stærð. Þessir vagnar eru með utanáliggjandi kolsýruflösku og 5m langri slöngu með dreifistút. Mjög gott verð.



Frá sama framleiðanda sem er Lifeco eigum við kost á duft-, léttvatns- og vatnsslökkvivögnum í ýmsum stærðum eins og 25, 50, 100 og 135 kg./l. 25 og 50 kg. duftslökkvivagnar til á lager.



Sérsmíðaðar duftkúlur frá Lifeco. Sjá nánar frétt.