Spilliefnagámurinn fyrir SA kominn

Gámurinn lagði af stað norður á Akureyri fyrir stundu. Við erum sáttir við smíðina eins og við er að búast hjá Wawrzaszek. Eina sem við fundum að var að við fundum ekki lyklana. Það leysist.

Hér má lesa meira um gáminn en við höfum eins og margir vita selt svipaðan gám eða gáma til SHS. Þessi gámur er að ýmsu leyti frábrgugðinn gámi SHS m.a. eru olíuofnar en ekki blásarar til upphitunar. Önnur gerð er af rafstöð. Aðrar festingar fyrir reykköfunartæki enda liðin ekki með sömu gerð af reykköfunartækjum.

Uppbygging eins og stærð og tilgangur sá sami. Hér má lesa um SHS gámana. Myndir eru á myndasíðu undir slökkvibifreiðar.

Spilliefnagámur fyrir Slökkvilið Akureyrar