Sveitarfélagið Skagafjörður með nýja Coltri loftdælu.

Auðvitað væri gaman að lofa mönnum að fylgjast með öllu sem við seljum til slökkviliða en það væri allt of langt mál. En samt langar okkur til að segja frá því að tvö slökkvilið eru nú komin með nýjar Coltri loftdælur, en það eru Slökkvilið Seyðisfjarðar og Brunavarnir Skagafjarðar. Við kynntum þessar loftdælur með bréfi og á heimasíðu okkar fyrir stuttu og erum mjög ánægðir með viðtökurnar og ekki skemmir fyrir að Coltri loftdælurnar líta betur út í raunveruleikanum en á mynd.
Okkur líst sem sagt mjög vel á þessar loftdælur og hvetjum menn sem hug hafa á að kaupa loftdælu að skoða Coltri dælur.