Þessi slökkvibifreið er til sölu og afhendingar núna

Rosenbauer ES-System TLF20/40 slökkvibifreið á MAN 14.28 4x4 undirvagni, sjálfskiptur með 280 hestafla vél er til sölu og afhendingar núna. Bifreiðin er af árgerð 2006 og ekin 2.500 km. Myndir voru að berast.


Hér eru helstu upplýsingar.

Áhafnarhús er fyrir 1 +2 og er svokölluð lengri gerð.

Vatnstankur 4.500 l.

Froðutankur 500 l.

Rosenbauer N30 dæla að aftan 3.000 l/mín við 10 bar. Fjögur úttök til hliðanna. Þrjú inntök að aftan. Dælan loft og rafstýrð að miklu leiti.

Slönguhjól með 25mm 50 m. langri slöngu með kastlengd 28 til 30 m.

Á þaki er handstýrður úðastútur Rosenbauer RM24 með froðustút.

Bifreiðin er af svokallaðri Pump and Roll gerð þ.e. getur ekið á litlum hraða meðan dælt er.

Stærð 7.700 x 2.500 x 3.300 mm og þyngd 14.500 kg.

Ljósamastur með tilheyrandi búnaði 2 x 1000W.

Bifreiðin er vel útbúin.

Hér er upplýsingabæklingur um bifreiðina.

Leitið upplýsinga ef þið hafið áhuga.