Þó nokkur sala í Robinson rennihurðum


Eins og fram kemur hér að neðan þá eru til 3 mismunandi gerðir af rennihurðum. Í hverju verkefni leitum við til birgja leggjum fyrir hann gerð skápa og nauðsynleg mál og fáum í framhaldi af því tilboð. Afgreiðslutíminn er um 4 vikur að jafnaði.

Hér fyrir neðan er teikning af einni gerð þ.e. Roll Shutter.

Robinson rennihurðir

Hér má svo sjá mismunandi læsingarhandföng.

Robinson hurðalæsingar

JR Industries framleiða í fjórum löndum og flytja til 33ja landa framleiðslu sína. Margar gerðir og stærðir. Í slökkvibifreiðar er oftast settar hurðir með 34mm breiðum rimum. Þéttingar á milli. Algengasta læsing er hurðaslá. Hurðirnar eru úr seltuvörðu áli. Einnig hægt að fá sprautaðar hurðir.

Hurðaopnun og lokun er af þremur gerðum sem sést á myndunum hér að neðan. Fyrst er gerð sem vefst um rúllu með tilheyrandi fjöðrum. Síðan er gerð sem rennur í þar til gerðri braut á rúllu og svo þriðja gerðin sem vinnur eins og báðar fyrri gerðirnar þ.e. á rúllu og í braut.
 
 
Hér eru frekari upplýsingar

 

.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....

 

.