Þráðlaus viðvörunarkefi.

Við höfum endurbætt heimasíðu upplýsingar um Jablotron þráðlausu viðvörunarkerfin en það kemur til af því að nú eru komnar nýjar gerðir stjórnstöðva í stað JA-60 Comfort stöðvanna sem við höfum verið með um árabil. Nýju stöðvarnar nefnast JA-63 Profi. Helsti munur er að þær eru 16 rása sem setja má tvöfalt á hverja svo hægt er að hafa allt að 32 nema þráðlausa. Eins eru fjórar víraðar rásir. Margir nýir m/öguleikar við tölvutengingar og aðgang að kerfum í gegnum síma. Lyklaborð er ekki á stöðvunum svo taka verður með lyklaborð og eins sírenu þar sem hún er ekki innibyggð. Þetta leyfir annan frágang á kerfum. GSM kefið verður við þetta ódýrara en áður (um15%) en línuupphringikerfi hækkar í verði um 15%. Vinsamlegast skoðið heimasíðuna. Um leið höfum við sett tengingar inn á heimasíðu birgja okkar.

Jablotron býður einnig tilbúin forrituð kerfi af tveimur gerðum. Við erum ekki með þessi kerfi á lager sem komið er en ef eftirspurn eykst munum við gera það.

Við getum einnig boðið víruð kerfi og höfum selt nokkur en eftirspurn er meiri eftir þeim þráðlausu svo þau kerfi eru yfirleitt á lager eða stuttur afgreiðslufrestur.