Þrjár Panther slökkvibifreiðar á Sola flugvöll

Í janúar afhenti Egenes Brannteknikk AS þrjá Rosenbauer Panther flugvallaslökkvibifreiðar á Sola flugvöllinn í Stavanger í Noregi

Rosenbauer Panther slökkvibifreiðar eru á fleiri flugvöllum í Noregi en þar má nefna m.a. Gardermoen flugvöllinn og svo Slökkviliðsmannaskólann í Tjeldsundi

Rosenbauer Panther flugvallaslökkvibifreiðar

Eins og áður sagði þá eru slökkvibifreiðarnar þrjá á Sola flugvellinum í Stavanger Lufthavn. Bifreiðarnar eru allar af nýjustu og fullkomnustu Panther gerð og koma frá Egenes Brannteknikk.

Bifreiðarnar eru búnar nýjasta slökkvibúnaðnum, öflugri brunadælu, sjálfvirku froðublöndunarkerfi, rafstýrðum vatns og froðu úðabyssum á þaki og að framan, CAFS slökkvikerfi, LED ljósamastri, vökvastýrðum afturöxli, sídrif á öllum hjólum 6x6, 18 lítra 700 hestafla Caterpillarvél.

Öll bifreiðin þar á meðal grind og yfirbygging er Rosenbauer hönnun og bygging. Stýribúnaðurinn er  af gerðinni Rosenbauer CAN-bus system.

Ökumaður er í miðsæti þar sem hann nær til og getur stýrt öllum slökkvibúnaði, en að auki er pláss fyrir aðra þrjá í ökumannshúsi.

12000 lítra vatnstankur, 1500 lítra froðutankur, 250 kg duftkúla. Heildarþyngd 35,6 tonn. Hröðun 0-80 km/klst á 29 sek. Hámarkshraði 110 km/klst.

Rosenbauer Panther flugvallaslökkvibifreiðar

Viðskiptavinur: Avinor Flugvöllurinn - Sola Stavanger
Gerð: Rosenbauer Panther 6x6 CA Euro 5
Undirvagn: Rosenbauer Motors 36.705 6x6, 705 hestafla Caterpillar vél, Twin Disc sjálfskipting
Hröðun: 0-80 km/klst. á 29 sek
Hámarkshraði: ca. 110 km/klst.
Ökumannshús: Rosenbauer öryggishús (ECE R29) fyrir ökumann. 4 reykkafarasæti
Yfirbygging: Rosenbauer einingakerfi
Vatnstankur: Úr trefjaplasti 12 000 lítra
Froðutankur: Úr trefjaplast 1 500 lítra
Brunadæla: Rosenbauer R600, 6000 l/mín við 10 bar, miðskips, knúin af Twin Disc Power skiptir
Froðublöndunarkerfi: Rosenbauer Foamatic RVME 500
Úðabyssur: Rosenbauer RM60C rafstýrð (CAN-bus stýring) á ökumannshúsi, Rosenbauer RM15E rafstýrð og staðsett að framan
Hitamyndavél: FLIR myndavél fest á úðabyssuna að framan með LCD skjá á mælaborði fyrir akstur við slæm skilyrði
Duftslökkvikerfi: PLA 250 - 250 kg
Rosenbauer Flexi-Light ljósamastur með 8 stk. LED ljóskastara og þráðlausa fjarstýringu


.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....




.