Tilboð á Holmatro björgunartækjum


Í september munum við bjóða Holmatro björgunartæki rafhlöðudrifin eða vökvadrifin á tilboði. Í vor heimsóttum við nokkur slökkvilið og vorum með kynningar.

Fengum góðar móttökur og aðsókn var góð. Við þökkum þeim slökkviliðum sem sáu okkur fyrir aðstöðu mikið vel fyrir.

Við höfum sett saman nokkur sett af þ.e. af vökvadrifnum tækjum og svo rafhlöðudrifnum og höfum til hliðsjónar þær gerðir tækja sem við höfum selt mest af. Við viljum þó vekja athygli á að ef einhver kýs aðra samsetningu á setti þá að sjálfsögðu verður orðið við slíkum óskum.

Við sendum frá okkur í morgun í e-pósti upplýsingar á öll slökkvilið. Ef frekari upplýsinga er þörf sendið fyrirspurn á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800.

 

Holmatro EVO Greenline CU5050i klippur