Tohatsu sýndu lausar dælur

Tohatsu sýndu nokkar gerðir af lausum dælum og m.a litla og netta dælu sem skilar um 650 l/mín við 5 bar og 3ja m. soghæð. Eins sýndu þeir úðastút sem fjarstýrir dælu þ.e. hægt er að ræsa og drepa á dælu frá stút. Tohatsu hefur framleitt dælur með loft eða vatnskældum tvígengisvélum í um 70 ár. Nokkrar dælur eru hérlendis en ekki margar. Við komumst að samkomulagi um beinan innflutning og getum boðið nokkuð góð verð viljum við ætla og nefnum þau hér á eftir. Við bendum ykkur á að skoða upplýsingar um Tohatsu dælur á heimasíðu okkar.

Hér er sýnd litla dælan sem við nefndum hér að ofan.
   
Hér er er svo sýndur stúturinn sem hægt er að fjarstýra dælunni með. 

   
Hér koma svo þau verð sem við getum boðið fram á haust verði ekki verulegar breytingar á gengi. Öll verð eru án VSK. Afköst gefin upp miðað við 3ja m. soghæð.
              
VD20D2 650 l/mín við 5 bar kr.   320.420
VD20D2S  650 l/mín við 5 bar kr.   380.235
VC52AS 1.000 l/mín við 8 bar kr.   598.120
VC72AS 1.300 l/mín við 8 bar kr.   670.745
VC82ASE 1.800 l/mín við 8 bar kr.   733.405