Upplýsingabæklingur frá Rosenbauer

Okkur hafa borist nokkur eintök af upplýsingabæklingi frá Rosenbauer yfir búnað og efni til að fást við upphreinsun spilliefna.

Bæklingurinn er á norsku og sýnir á mjög svo einfaldan hátt hvernig velja skal búnað sem hæfir hverju slökkviliði miðað við þær aðstæður sem það starfar í. Hættur eru flokkaðar í geislunar- líffræðilegar- og efnafræðilegar- hættur. Einnig eru efnafræðilegu hætturnar flokkaðar frekar niður miðað við stærð áhættunarinnar. Lítið, miðlungs eða stórt slökkvilið með svo mismunandi miklar áhættur.

Bæklingnum lýkur með flokkun á varnar og hreinsibúnaði fyrir þá sem vinna að upphreinsun. Eins og áður sagði eigum við örfá eintök af þessum bæklingi en þessi bæklingur er einnig til á ensku upp á einar 48 síður. Sjá hér.

Leitið til okkar með frekari upplýsingar. Sumt af þessum búnaði eða sambærilegt eigum við nú þegar á lager og annað getum við útvegað fljótt.