Okkur var að berast tilkynning frá Ríkiskaupum um hver hlaut hnossið í útboði á 8
sjúkrabílum fyrir Rauða kross Íslands. Aðeins voru 21 mínúta þar til skrifstofa Ríkiskaupa lokaði svo réttur til
ákvörðunar var nánast fullnýttur.
Tilvitnun hefst
-----Original Message-----
From: Anna Sóley Sveinsdóttir [mailto:anna@rikiskaup.is]
Sent: 20. september 2005 15:39
To: ogeld@islandia.is
Subject: 13790. Taka tilboðs og tilkynning um niðurstöðu útboðs
13790-Sjúkrabifreiðar fyrir Rauða kross Íslands
Ágæti viðtakandi
Það tilkynnist yður hér með að ákveðið hefur verið að taka hagkvæmasta tilboði í
ofangreindu útboði, sem er tilboð Múlatinds ehf. með M. Benz Sprinter316 CDI 4x4 að upph. kr. 5.784.640,-
Samkvæmt 53. gr. laga nr. 94/2001 eiga bjóðendur rétt á að fá rökstuðning fyrir höfnun á tilboðum
sínum, sendi þeir um það skriflega beiðni (bréf, fax, tölvupóstur) til Ríkiskaupa. Ríkiskaup munu svara beiðninni eigi síðar en 15 dögum eftir að hún berst.
Í XIII kafla laga um opinber innkaup, nr. 94/2001 er fjallað um kærunefnd útboðsmála. Þar kemur fram í 1. mgr. 78 gr.:
Kæra skal borin skriflega undir kærunefnd útboðsmála innan fjögurra vikna frá því kærandi vissi eða mátti vita um ákvörðun,
athöfn eða athafnaleysi sem hann telur brjóta gegn réttindum sínum.
Lög um opinber innkaup nr. 94/2001 eru birt í heild sinni á heimasíðu Ríkiskaupa http://www.rikiskaup.is/rikiskaup.nsf/pages/index.html.
Ríkiskaup þakka yður fyrir þátttökuna.
kveðja / Regards,
Anna Sóley Sveinsdóttir
Útboðsfulltrúi / Tender Division
Ríkiskaup / State Trading Centre
Sími: 530 1415 / Tel.: +354 530 1415
Myndsendir: 530 1414 / Fax: +354 530 1414
Netfang / E-mail: anna.soley.sveinsdottir@rikiskaup.is
Tilvitnun lýkur
Þá er það komið í ljós að ganga á til samninga við Múlatind ehf gerum við
ráð fyrir ekki Múlatind sf. Það verður fróðlegt að fylgjast með á næstunni því við gerum ráð fyrir að
það verði fleiri en við sem viljum fá skýringar á þessari ákvörðun og af hverju Ríkiskaup og Rauði krossinn fara ekki eftir
útboðsskilmálum.
Okkar tilboð með ákvæði um 3% afslátt fyrir undirvagn af Ford Econoline gerð var kr. 5.774.004,00 eða
kr. 10.636,00 lægra en það tilboð sem tekið var á undirvagn af MB Sprinter gerð.
Hér fer á eftir fréttin um opnunina.
Opnun útboðs Ríkiskaupa í 8 sjúkrabifreiðar fyrir Rauða krossinn.
Undirvagn |
Verð í kr. |
% |
Tilboðsgjafi |
Mismunur í kr. |
Bifreiðar með 4x4
|
|
|
|
|
Sprinter 316 CDI |
5.630.805 |
0,00% |
Múlatindur |
0 |
Sprinter 316 CDI |
5.714.840 |
1,49% |
Múlatindur |
84.035 |
Sprinter 316 CDI |
5.784.640 |
2,73% |
Múlatindur |
153.835 |
Ford E-350 High Rise Ambulance TS2000 |
5.799.900 |
3,00% |
Tri Star Industries Ltd. |
169.095 |
Ford E-350 4x4 |
5.952.581 |
5,71% |
Ó.G. & Co hf. |
321.776 |
Ford E-350 Extended |
6.221.140 |
10,48% |
Múlatindur |
590.335 |
Sprinter 316 CDI |
6.449.088 |
14,53% |
Ó.G. & Co hf. |
818.283 |
Sprinter 316 CDI |
6.634.801 |
17,83% |
MT- Bílar |
1.003.996 |
Mantra 316 CDI |
7.407.941 |
31,56% |
Ó.G. & Co hf. |
1.777.136 |
Ford E-350 4x4 |
7.426.622 |
31,89% |
MT- Bílar |
1.795.817 |
Ford E-350 4x4 |
7.664.319 |
36,11% |
SUT ehf-Scanfire |
2.033.514 |
Sprinter 316 CDI |
7.719.982 |
37.,10% |
SUT ehf-Scanfire |
2.089.177 |
Hér sjást niðurstöður úr opnun útboðsins og er hér um verulegar breytingar frá síðasta útboði en
nú voru annaðhvort lág verð eða há. Lítill munur var á milli tilboða í fyrra. Menn gengu mun rólegri af opnunarfundi en þá.
Aðeins til að útskýra útboðið þá er það fyrst nú sem Rauði krossinn velur bifreiðar eftir punktakerfi þ.e. verð vegur
67 punkta en gæði 33 punkta. Síðan er vægi gæðapunktanna mismunandi t.d. vegur vökvasjálfskiping 9 punkta en tölvuskipting aðeins 3 punkta.
Síðan er tekið tillit til þátta eins og hröðunar, fjöðrunar, eldsneytisneyslu, mengunar og þol gegn hliðar vindálagi. Áður var
verð 100 punktar þ.e. ákvörðun var byggð á verði eingöngu.
Innréttingar og frágangur er að t.d. er bekkur (með nýrri úfærslu) en klappstóll horfinn. Fjórhjóladrif og
sjálfskipting.
Það sem undirritaður veit um tilboðin.
Í fyrsta sæti er Sprinter með Sprintshift skiptingu sem þýðir 3 punktar. Í öðru sæti er Sprinter en með
vökvasjálfskiptingu sem þýðir 9 punktar og í þriðja sæti Sprinter með vökvaskiptingu og kraftkubb þ.e. 9 punktar og eflaust punktar fyrir
hröðun en hvort þeir eru margir á móti Ford Econoline veit ég ekki. Múlatindur er nýr bjóðandi en þekktur
Ólafsfirðingur.
Svo kemur fyrsti ameríski undirvagninn en hann er frá Tri-Star sem fékk í síðasta útboði þrjár bifreiðar
(að vísu með stól í stað bekkjar). Athyglisvert tilboð nánast það sama og síðast sé tekið tillit til styrkingar
krónunnar.
Svo komum við með amerískan undirvagn frá samlanda Tri-Star. Verulega vandaðir vagnar með margar nýjungar eins og sjá má
á myndunum hér neðar á síðunni. Í tilboði okkar eru ákvæði um 3% afslátt sem skýtur okkur í fyrsta sæti amerískra
undirvagna. Punktar ættu að vera svipaðir en þó eigum við einhverja auka punkta fyrir vindálag. Birgi okkar Demers Ambulances er með 50% markaðshluta
í Kanada og talsverðan útflutning í flestar heimsálfur. eins eru m.a. í Evrópu samstarfsaðilar sem kaupa hluta innréttinga sinna hjá þeim.
Framleiðsla Demers Ambulances er milli 5 og 600 sjúkrabifreiðar á ári af ýmsum stærðum og gerðum og í nánast öllum tilfellum er undirvagn
af Ford gerð.
Ég tel að valið muni standa á milli þessara sem ég hef að ofan greint. Spurningin sem hvílir á mönnum vilja menn
áfram ameríska undirvagna eða geta menn hugsað sér þýskan undirvagn með vökvasjálfskiptingu. Þetta hefur vafist fyrir mönnum en
punktakerfið og niðurstöður þess eiga að vera gerðar öllum kunnugar og verður þess beðið með óþreyju. Allt gegnsætt
í dag og það verður aðeins ein gerð fyrir valinu eða öllum hafnað.
Enn á ný koma staðreyndir í ljós að verðsamkeppnin í þessum útboðum er mikil og hörð. Verð
á sjúkrabifreiðum í dag er langt frá því sem ætla mætti ef ekki væri þessi gríðalega samkeppni. Það geta þeir sem
áhuga hafa á skoðað frekar. Verð bifreiða er langtum lægra í dag en það var fyrir t.d. fjórum árum. Að verð
sjúkrabifreiðar skuli vera innan við 6 milljónir. Það er ekki merkilegt í samanburði við aðrar bifreiðar.
Reykjavík 30. ágúst 2005
Benedikt Einar Gunnarsson
Hér sést vel straumlínulagður toppurinn
|
|
Öll ljós innfelld í topp
|
|
Snyrtilegur og vandaður frágangur í mælaborði
|
|
Innanborðs í amerísku gerðinni
|
|
Bekkjarmegin í amerísku gerðinni
|
|
Séð inn um hliðardyr á amerísku gerðinni.
|