Okkur var að berast frá Holmatro nýr listi yfir ýmis björgunartæki, dælur, klippur, slöngur, stuðningsbúnað,
varahluti og aukahluti sem boðinn er á lægra verði, þar sem hann er lítilsháttar notaður eða jafnvel ekkert notaður. Þessi listi er
gerður úr listanum sem við birtist hér á síðunni 21. janúar síðastliðinn og sýnir það sem eftir er á
útsölunni þann 5. febrúar.
Eins og áður er aðeins um eitt eintak af hverju um sig, svo það verður að bregðast fljótt við. Við höfum reiknað út verð
án VSK, en ekki gefið okkur tíma til að snúa úr ensku lýsingu á ástandi hvers búnaðar. Það er auðlesið og við
auðvita til aðstoðar, ef þörf er á. Eins og áður sagði, er búnaðurinn lítið notaður eða alls ekki. Hefur hugsanlega
verið notaður til sýningar o.þ.h. Allur búnaður er yfirfarinn áður en hann er sendur.
Þetta er því afar einfalt. Það þarf að hella sér út í lestur og skoða hvort eitthvað leynist, sem hægt er að komast yfir fyrir
minni pening en nýtt. Bregðist nú skjótt við ef þið hafið áhuga.
Síðast brugðust nokkur slökkvilið og urðu sér út um búnað á góðu verði. Sá búnaður er nú á leiðinni
til landsins.
Frekari upplýsingar veitum við eða á
heimasíðu okkar eða
heimasíðu Holmatro.
.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar,
fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....