Úttekt á Scott þjónustustöð okkar

Nú hefur Scott þjónustustöðin verið tekin út af Brunamálastofnun en það var gert í gær og þá ekkert til fyrirstöðu að hefja starfsemi. Úttektin var án athugasemda.
Til gamans er hér mynd af  Scott veggnum en hann er þakinn viðurkenningum frá Scott í Bandaríkjunum og sömuleiðis frá Scott í Evrópu. Að auki er sérstök viðurkenning á þjónustustöðinni sjálfri.


Þökkum Slökkviliði Akureyrar og Brunamálastofnum fyrir veitta aðstoð. Þjónustustöðin hefur verið skráð á heimasíðu Scott. Hér má sjá skráningu á þjónustusíðu Scott og svo erum við auðvitað skráðir sem söluaðilar.



.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....