Við bjóðum nýjar gerðir af ljósum fyrir slökkvilið


Við erum komin með frá þeim sendingu af þeim ljósum sem við kynnum hér. Af þessari sendingu, sem er í mjög svo takmörkuðu upplagi, veitum við auka 20% afslátt. Við veitum þennan afslátt til að opna fyrir þann möguleika að slökkviliðin verði sér út um nokkur eintök til að prófa og falla fyrir. Verðin eru svo birt hér fyrir neðan við hverja gerð. Verðin eru án VSK. og með afslætti (V4).

Ef þið hafið áhuga og frekari upplýsinga er þörf sendið fyrirspurn á oger@oger.is eða hringið í síma 5684800.

Þessi ljós sem við nefnum hér eru fyrir slökkvilið og björgunarsveitir. Verðið er hagstætt og allar þessar gerðir eru neistavarðar ATEX. Allar upplýsingar um ljósin eru myndrænar og mjög auðvelt að lesa sér til um ljósin.

Mactronic M-Fire AG

M-Fire AG | Vörunúmer 322014 Verð án VSK. 9.547.- til slökkviliða.
Venjulegt reykkafaraljós með klemmu fyrir vasa eða belti. Ljósið er tiltölulega nett og allir kantar rúnnaðir sem dregur úr hættu að festa það í eitthvað við þröngar aðstæður. Díóðuljós með Cree LED 200 LUM sker reykinn í allt að 240 m. Í M-Fire AG eru 4 x AA rafhlöður sem duga í 10 1/2 klst. á 50% álagi. Ex-ATEX viðurkenning og vatnsvarið samkvæmt staðlinum IPX4. Hentar vel við verstu aðstæður.

Mactronic M-Fire 03

M-Fire 03 | Vörunúmer 322012 Verð án VSK. 7.168.- til slökkviliða.
M-Fire 03 er sérstaklega vandað og öflugt ljós fyrir slökkviliðs- og björgunarsveitamenn sem þurfa ljós með Ex ATEX viðurkenningu. Til að hindra að neisti geti myndast ef ljósið er opnað í ógáti er sérstök skrúfa sem festir hausinn á ljósinu. Innbyggður þrýstijafnari sem losar hita og ver innmatinn fyrir yfirhitun. Sérstaklega létt og hægt að festa við hjálma. M-Fire 03 er högg, ryk og vatnsvarið samkvæmt staðlinum IP67 og með ANSI flokkun. Kveikt og slökkt er á ljósinu með segulrofa og er ljósorkan 157 LUM. Öryggislás er á rofanum til að koma í veg fyrir að það kvikni óvart á ljósinu og rafhlaðan eyðist. Við 45% álag endist rafhlaðan í 13 klst.

Mactronic M-Fire 02

M-Fire 02 | Vörunúmer 322010 Verð án VSK. 6.294.- til slökkviliða.
Ný gerð af M-Fire handljósum. M-Fire 02 er nú díóðuljós CREE LED með 120 LUM ljósorku (næstum því tvöfalt á við eldri gerðina) og langan ljósgeisla - yfir 170 m. Handljósið er vatns og rykvarið samkvæmt staðlinum IP67 og að auki með Ex ATEX viðurkenningu sem gerir að ljósið vinnur örugglega við verstu aðstæður. Við 25% álag endist ljósið í allt að 69 klst. Á M-Fire 02 er hægt að fá ljósakóna og setja á hjálma slökkviliðsmanna.

Mactronic M-Fire HL

M-Fire HL | Vörunúmer 322016 Verð án VSK. 8.270.- til slökkviliða.
Sterkt, létt og nett ennisljós fyrir slökkviliðs og björgunarmenn. Ex-ATEX viðurkenning og vatnsvarið samkvæmt IP67 staðli. Ljósorka M-Fire HL er 150 LUM og sker sig í gengum ryk og móðu allt að 100 m. 3 stk. af AAA rafhlöðum sem skila ljósi í allt að 4 1/2 klst. Ennisljós er skynsöm lausn þegar þarf að nota tvær hendur í verkið.

Mactronic er framleiðandi á nánast öllum gerðum af ljósum, handljósum (einföldum), vönduðum vatnsheldum handljósum, leitarljósum, kösturum, reiðhjólaljós, ennisljós ofl. ofl. og er ætlun okkar að bjóða fleiri gerðir hjá þeim. Sýnishorn eru komin og við erum að vinna úr og skoða hvað við munum verða með á lager.

Bæklingur Mactronic Professional

Bæklingur Mactronic Tactical

Bæklingur Mactronic Outdoor