Viðurkenningar fyrir slökkvitækjaþjónustuna.

Viðurkenningarferli slökkvitækjaþjónustu okkar er nú lokið. Við höfum hlotið viðurkenningu Brunamálastofnunar, Siglingastofnunar og Vinnueftirlits fyrir starfsemi þjónustunarinnar og gildir sú viðurkenning fyrir að þjónusta, þrýstiprófa og yfirfara allar gerðir slökkvitækja þ.e. dufttækja, kolsýrutækja, vatnstækja og léttvatnstækja.

Allar kröfur hafa verið uppfylltar. Fjórir starfsmenn hafa réttindi frá Brunamálastofnun til starfseminnar.

Benedikt Einar Gunnarsson