Wenaas Pbi Kevlar hlífðarfatnaður til viðskiptavinar

Við höfum afhent nokkur sett af Wenaas Pbi Kevlar hlífðarfatnaði af annari kynslóð til eins viðskiptavinar okkar sem þekkir fatnaðinn af notkun.

Við höfum afhent nokkur sett af Wenaas Pbi Kevlar hlífðarfatnaði til eins viðskiptavinar okkar sem þekkir fatnaðinn af notkun. Þessi fatnaður er af annarri kynslóð af Pbi Kelvar Wenaas fatnaði en þessi fatnaður er með Airlock efni og Nomex fóðri.

Wenaas Pbi Matrix Kevlar 501 jakkiBæklingur

Wenaas Pbi Matrix Kevlar 501 buxurBæklingur


Hlífðarfatnaðurinn er gerður úr Pbi/Kevlar efnum, Airlock og með GORE-TEX vatns og öndunarvörn. Sniðið er  hálfsíður jakki með bak síðara. Buxur eru smekkbuxur. Fatnaðurinn í venjulegri útfærslu og sniði er vel búinn vösum, endurskinsmerkjum, krækjum fyrir hanska og maska og svo frönskum rennilás. Fatnaðurinn er norskur og verð er hagstætt miðað við fatnað úr þessum efnum og af þessum gæðum.

Litur er gulleitur sem er litur efnisins. Það er því ekki hætta á að brenna lit úr efni og vel er sýnilegt þegar fatnaður verður óhreinn. Efnið ofið með litlim ferningum(Ripstof) sem hindra á sprettur. Góð lokun er í háls. Styrkingar með fóðrun á öxlum. Tveir vasar fyrir fjarskiptabúnað í jakka ásamt tveimur öðrum hliðarvösum og svo er einn vasi að innan ásamt tveimur vösum fyrir hanska að innan. Stroff fyrir þumalfingur. Pbi efnisstyrkingar á neðri hluta erma að aftan og frá hné og niður að framan (svart efni). Rennilás og franskur rennilás til lokunar á jakka og buxum. Á baki jakka er öryggisbeltis festing þ.e. heilt stykki yfirsaumað til að verja öryggisbelti fyrir hita.

Buxur þrengdar í mittið með snúru. Tveir hliðarvasar á buxum. Sérstakur vasi fyrir hníf eða annað neðst á skálm. Hægt að þrengja skálmar með snúru (snjó og vatnsgildra). Neðst á jakka og buxum og eins í ermum er vatnhelt Kelvar efni til styrkingar.

......Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki......

 

.