Ný slökkvibifreið fyrir Brunavarnir Suðurnesja

Í þessari viku kemur til landsins ný og fullkomin slökkvibifreið fyrir Brunavarir Suðurnesja. Undirvagninn er af gerðinni Scania P94 4x2 með tvöföldu áhafnarhúsi, 310 hestafla vél, sjálfskiptingu og loftpúðafjöðrun. Byggt var yfir bifreiðina í verksmiðju Rosenbauer í Noregi.

Bifreiðin er með 3000 ltr. vatnstank, 200 ltr. froðutank. Rosenbauer NH30 lágþrýst og háþrýst dæla er í bifreiðinni ásamt slöngukeflum, ljósamastri, Unipower rafal beintengdum vél bifreiðar, Ziamatic festingum fyrir Scott reykköfunartæki í sætum í áhafnarhúsi. Í yfirbyggingu eru innréttingar svo sem hillur verkfæraveggir, slöngurekkar ásamt festingum fyrir hin ýmsu tæki slökkviliðsins.

Við hönnun og byggingu bifreiðarinnar var hugað sérstaklega að því að hafa allt aðgengi að skápum og tækjum sem þægilegast til að auðvelda vinnu við bifreiðina. Einn liður í þessu var að fá bifreiðina með loftpúðafjöðrun, sem gefur möguleika á að lækka bifreiðina þegar komið er á brunastað.

Þetta er önnur Rosenbauer bifreiðin sem Brunavarnir Suðurnesja fá afhenta en í vor fengu Brunavarnirnar afhenta Rosenbauer slökkvibifreið byggða á Ford 550 undirvagn. Sú bifreið er hönnuð sem alhliða björgunar og slökkvibifreið, með björgunartækjum og öðrum tækjum og tólum sem nýtast við björgun fólks úr bílslysum eða öðrum háska. Nýja bifreiðin leysir af hólmi Mercedes Benz slökkvibifreið árgerð 1988 sem hefur þegar verið seld til Slökkviliðsins í Vestmannaeyjum.


Smíði bifreiðarinnar á lokastigi hjá Rosenbauer í Noregi


Ný slökkvibifreið fyrir Brunavarnir Suðurnesja, stuttu áður en hún var send til Íslands