Brunavarnir Suðurnesja Fjölskyldudagur
12.06.2001
Fjölskyldudagur Ný slökkvi- og björgunarbifreið afhent.
Hann er glæsilegur nýi bíllinn
Síðasta laugardag var Fjölskyldudagur hjá Brunavörnum Suðurnesja, þar sem íbúum
Reykjanesbæjar gafst kostur á að kynna sér starfsemi neyðarsveita á svæðinu. Í tilefni dagsins var tækjabúnaður Brunavarna
Suðurnesja sýndur og kynntur sem og búnaður björgunarsveitarinnar Suðurness. Suðurnesjadeild Rauða Krossins var með kynningu á starfseminni og einnig
voru söluaðilar með kynningu á slökkvitækjum, reyskynjurum og fleiri eldvarnabúnaði.
Presturinn blessar
bifreiðina
Dagskráin byrjaði kl. 11 með formlegri afhendingu á nýrri Ford/Rosenbauer slökkvi og björgunarbifreið.
Bifreiðin er af gerðinni Ford 550XLT 4x4 sjálfskipt með tvöföldu húsi. Í yfirbyggingu sem er byggð úr áli og plasti er vatnstankur 800
ltr, froðutankur 100 ltr, Rosenbauer NH20 háþrýst og lágþrýst dæla 2000 ltr við 10 bar og 200 ltr. við 40 bar, dælan er knúin af
Hatz diesel vél og því óháð bílvélinni, inntak 4" úttök 21/2" og 11/2" öll með Storz tengjum. Froðublandari fyrir
há og lágþrýsting er sambyggður við dælu. Rafdrifið háþrýstislöngukefli með 50 mtr ¾" slöngu, loftdrifið
ljósamastur 4,6 mtr. með 3x500W kösturum, dráttarspil með festingum að aftan og framan. Bifreiðin kom með festingum og innréttingum frá
framleiðanda svo sem, útdregnum festingum fyrir reykköfunartæki og aukakúta, skúffu fyrir ofan dælu, föstum hillum, útfellanlegum
verkfæravegg, snúningspalli fyrir björgunartæki og festingum fyrir ýmsan búnað.
Búið að
koma tækjum og búnaði fyrir
Starfsmenn Brunavarna Suðurnesja hafa síðustu daga komið fyrir ýmsum tækjum og búnaði sem til var í
bílinn og nú síðast nýjum Holmatro björgunartækjum sem Brunavarnirnar fengu í síðustu viku. Búnaðurinn samanstendur af
dælu sem drífur tvö tæki samtímis og slönguhjólum með 25 mtr. slöngum, aukadælu af gerðinni TPU15 sem er létt og
meðfærileg dæla, klippum, glennum, tjakk, pedalaklippum og fl. Öllum búnaði hefur verið einstaklega vel fyrir komið og þess gætt að ofhlaða
ekki skápa og að þægilegt sé að nálgast búnað og stjórntæki. Bíllinn er allur hinn glæsilegasti og við
óskum Brunavörnum Suðurnesja til hamingju með nújan bíl og búnað.
Slasaðir klipptir
út úr bílflaki með HOLMATRO björgunartækjum
Eftir afhendingu bílsins hélt dagskrá fjölskyldudagsins áfram með því að sýnd var notkun
björgunartækja við björgun slasaðra úr bíl.