Eiturefnabúningar fyrir t.d. frystihús og fiskveiðiflotann.

Eiturefnabúningar fyrir t.d. frystihús og fiskveiðiflotann eða þar sem Ammóníak er. Undanfarin ár höfum við flutt inn og selt eiturefnabúninga og m.a. eiturefnabúninga af svokallaðri "limited use" gerð en það eru gerðir búninga sem  hafa takmarkað þol og ef um sterk efni er að ræða geta þeir verið einnota. Þeir þurfa sérstaka skoðun eftir hverja notkun en verð þeirra er þriðjungur af verði alvöru (fullorðins) eiturefnabúninga.
Við viljum því vekja athygli á Trellchem Light eiturefnabúningum af tveimur gerðum T (reykköfunartæki utan á búningi) eða TL (reykköfunartæki inni í búningnum). Þol þessara búninga gagnvart Ammóníaki er talsvert að minnsta kosti um 2 klst. Eins má hitastig fara niður í -40°C. Gæta þarf sín helst á ef hætta er á að fá Ammóníakskvettur en þáer vissara að vera með Trellcover hlíf að auki.

Verðlistaverð  er ekki fjarri ,, limited use ´´ búningum eða frá kr. 102.544 (T gerð) til kr. 118.910 (TL gerð) án VSK.

Skoðið T gerð eða TE gerð.