Í nýjasta tímariti Utrykning Nr. 4 2005 er ISS Renault Mascot frá Wawrzaszek í Póllandi á forsíðu. Í
nóvember í fyrra birtist grein um þessar bifreiðar sem voru þá á sýningu í Svíþjóð (sjá frétt). Við kynntum þessar bifreiðar í lok september síðastliðnum (sjá kynningu).
Bifreiðin er búin 156 hestafla vél og vegur um 6500 kg. tilbúin í útkall. Yfirbyggingin er úr trefjaplasti svo
kölluðu ,, sandwichlaminated´´ plasti.Vatnstankur tekur um 1.000 l. og froðutankur er 100 l. Dælan er sænsk af Ruberg gerð R12 sem gefur um 1.200 l/mín
og hefur soginntak frá opnu sem Svíar eru ekki vanir nú í seinni tíð. Fullkominn stjórnbúnaður. Gott skáparými og
slöngukefli. Hleri er á bakhlið sem opnast upp og er það nánast öll bakhliðin sem opnast og gefur gott skjól fyrir ofankomu. Ljósamastur er
á bifreiðinni 2 x 1000W. Áhafnarhús er fyrir 5 manns. Þetta er semsagt lítil BAS bifreið.
Nú er slík bifreið komin til björgunarliðsins í Donsö við Gautaborg og hafa þó nokkur björgunar og
slökkvilið sýnt áhuga á slíkum bifreiðum. Verðið er mjög hagstætt.
Forsíðan
|
Myndir og grein
|
Myndir og grein
|
Í sama tímariti er grein um Finnarna á Rauða hananum en á þeim síðum er m.a. mynd og upplýsingar
um nýja körfubifreið SHS sem komin er til þeirra. Eins er á annari síðu mjög svo skemmtileg körfu og slökkvibifreið byggð af Wawrzaszek
í samvinnu við Bronto. Frá þessari bifreið sögðum við í grein um Rauða hanann og Wawrzaszek (sjá hér).
SHS Körfubifreiðin
|
ISS Wawraszek körfu og slökkvibifreið
|