Framúrskarandi fyrirtæki 2014 Gullmerkið


Eins og undanfarin ár hefur Creditinfo hefur unnið að ítarlegri greiningu sem sýnir hvaða íslensku fyrirtæki fá bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati félagsins. Við hlutum viðurkenningu 2010, 2011, 2012, 2013 og nú fyrir árið 2014. 5 ár í röð færir okkur gullmerki

Af 34 þúsundum fyrirtækjum sem skráð eru í hlutafélagaskrá sýna 577 fyrirtæki, 1,7% af öllum fyrirtækjum í landinu, þann styrk í mælingum Creditinfo að verðskulda viðurkenninguna „Framúrskarandi fyrirtæki“.

Að mati Creditinfo er mikilvægara á litlum markaði að draga fram styrkleika fyrirtækja sem birtist í stöðugleika í rekstri fremur en niðurstöðum einstakra rekstrarára. Slíkar kröfur eru líklegri til að undanskilja sveiflukenndan árangur stærri eignarhalds- og móðurfélaga en undirstrika frekar styrkleika fyrirtækja í virkri starfsemi sem standast ýmsar efnahagssveiflur.

Eftirfarandi upplýsingar eru lagðar til grundvallar á mati Creditinfo um hvort fyrirtæki uppfylli skilyrði styrkleikamatsins:

  • að hafa skilað ársreikningum til RSK síðastliðin 3 ár

  • minna en 0,5% líkur á alvarlegum vanskilum

  • að sýna jákvæðan rekstrarhagnað (EBIT) þrjú ár í röð

  • að ársniðurstaða sé jákvæð þrjú ár í röð

  • eignir séu 80 milljónir eða meira undanfarin 3 ár

  • að eigið fé sé 20% eða meira, rekstrarárin 2011 til 2013

  • að vera með skráðan framkvæmdastjóra í hlutafélagaskrá

  • að vera virkt fyrirtæki skv. skilgreiningu Creditinfo

Framúrskarandi fyrirtæki 2014
Við erum meðal þessara 577 fyrirtækja og númer 267
(smellið á myndina)