Fyrstu stóru FirePro slökkvikerfin sett í báta hérlendis hjá dreifingaraðila okkar á Akranesi Eldvörn.
Á næstu dögum verða sett upp kerfi í tvo báta á Akranesi í stað kolsýrukerfa. Í
þessa tvo báta var valið kerfi af gerðinn FP500 og er það handvirkt eins og reglur Siglingastofnunar kveða á um. Í dósinni sem er aðeins 22
sm á hæð og tæplega 9 sm. í þvermál er 500 g. sérstaks ABC slökkviefnis og nýtist þessi stærð í 12,5m3 rými
eða rými þar sem þarf venjulega tvö 9 kg. kolsýrutæki. Fyrirferð er engin. Útlosun efnisins gerist á 10 til 15 sekúndum.
Öryggisfjarlægð er 2,5 m. en búnaðurinn fer sjálfvirkt af stað við 300°C en ef við hann sé tengdur hitaþráður fer hann af
stað við 172°C en ekki er krafist af Siglingastofnun að kerfin séu sjálfvirk.
![](/static/files/Frettir/FP500_1.jpg)
Við uppsetningu og útreikning á slíkum kerfum koma margir þættir að. Staðsetning, gerð kerfis heitt eða kalt, dreifing, stærð
rýmis, fyrirkomulag rýmis, innréttingar í rými þá bæði fastar og lausar. Þrír starfsmenn okkar hafa sótt
námskeið hjá Plahn System og fengið vottorð upp á það. Við útreikning styðjumst við við útreikningsforrit og svo er dregin upp
teikning af rýminu eins og sjá má á eftirfarandi mynd og pdf. skjali.
Slík kerfi sem þessi eiga heima við ýmsar aðstæður eins og í öllum gerðum bifreiða, í húsnæði og við
eldvarnir margs konar búnaðar eins og töfluskápa, tölvur ofl. ofl.
Benedikt Einar Gunnarsson