Meira að sjá frá Póllandi

Við höfum nú sett inn fleiri myndir frá heimsókn okkar til Bielsko Biala fyrr í vikunni þar sem við vorum að skoða slökkvibifreiðar. Hér eru myndir af ýmsum bifreiðum í smíðum og sú grængula er sú sem fer á Egilsstaðaflugvöll.

Vinstri hlið, háþrýstikefli í aftari skápum




Til fróðleiks látum við hér nokkrar teikningar af bifreiðinni en allar bifreiðar eru teiknaðar í þrívíddarforriti sem gefur möguleika á að átta sig á stærðum. Hægt er að velta teikningum og byggja þannig bifreiðina í forritinu áður en raunveruleg bygging hefst.

Séð á þak, Úðastútur og ljósamastur



Þannig var auðvelt að ákveða hvaða innréttingar fari í hvern skáp fyrir sig. Slöngurekkar og hillur fara í öftustu tvo hliðarskápana en í fremmri skápana báða fara hreyfanlegir veggir. Á þak verður svo settur kassi fyrir samtengdar 3" slöngur sem hægt verður að draga aftur af bifreiðinni.
Séð inn í dæluskáp




Bifreiðin verður með 6.100 l. af vatni og 610 l. froðutank. Áfylling á vatnstank er um tvær 2 1/2" í hægri aftari hliðarskáp. Froðublandari er stillalegur 1, 3 og 6%. Stýringar á dælu eru bæði í ökumannshúsi og dæluskáp.

Yfirlitsmynd



Bifreiðina getur einn maður unnið með og er hún útbúin með svokölluðu "Pump and Roll" sem leyfir akstur á ákveðnum hraða og dælingu samtímis. Dælan er sú sama og í öðrum bifreiðum sem við höfum selt undanfarið eða Ruberg R40 2,5 eða 4.000 l. dæla háþrýst og lágþrýst.




Hér er samsett vinnslumynd
Smíðaður var sérstakur pallur á ökumannshús fyrir þakúðastút. Báðir úðastútarnir eru af Akron Brass gerð sem er vel þekkt merki hérlendis og við höfum selt um margra ára skeið. Þeir eru þannig útbúnir að þegar slökkt er á þeim fara þeir í hvíldarstöðu.