Við höfum áður skrifað um innflutning slökkvitækja á síðuna og velt upp staðreyndum um innflutningstölur, magn og verð.
Innflutningur jókst milli áranna 2005 og 2006 um 21% og var heildar innflutningur um 26 milljónir sem 10 tl 12 innflytjendur standa að. Það er ekki stórt
meðaltalið. Heimildir um innflutning höfum við frá Hagstofu.
Það er alltaf eitthvað að gerast og nú samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu voru flutt inn í janúar slökkvitæki frá Kína.
Þetta voru ein 12,2 tonn af tækjum sem hægt er að velta fyrir sé hvað séu mörg tæki ef um margar gerðir var að ræða. Við
höfum svo sem hugmyndir um það. Ef við leikum okkur svolítið af tölum þá var meðal kg. verð á tækjum árið 2006 um kr. 274 og
þá miðað við FOB verð. Fyrstu tvo mánuðina er það kr. 244 pr. kg. en meðalverð þessara kínversku tækja er kr. 140 pr. kg.
Raunverulega skiptir ekki máli hvaða meðalverð við notum svo framarlega sem við erum að velja saman sömu kostnaðartölur. Gengið spilar ekki
stórt hlutverk munurinn er ekki mikill á meðalverði. Segjum 2 til 4%.
Þetta segir að þessi kínversku tæki eru allverulega ódýrari en þau tæki sem voru fyrir á markaðnum í innkaupi eða milli 43 eða
49% eftir því við hvaða meðalverð er borið saman við. Við erum ekki að bera saman við meðalverð í janúar en þá
yrði munurinn enn meiri og það er engin sanngirni í því. Þetta er þó nokkuð en eftir stutta eftirgrennslan á markaðnum þá kemur
í ljós að því er ekki að heilsa að markaðurinn njóti þessa hagstæðu innkaupa og er verð sem við höfum séð
hærra en verð okkar. Það er að vísu sett fram með Múskó aðferðinni þ.e. verð og svo kynningarverð.
Hér sést að nánast eini innflutningurinn í janúar var frá Kína og í aftasta dálknum má lesa meðal kg. verðið. Hlutfallið
breytist strax í febrúar.
Innflutningur í janúar 2007
Land |
Þyngd |
FOB verð |
CIF verð |
Hlutdeild |
Kg. verð |
Bandaríkin |
3 |
43.948 |
48.841 |
0,02% |
14.649,33 |
Bretland |
675 |
1.244.309 |
1.347.900 |
4,26% |
1.843,42 |
Kína |
12.203 |
1.701.779 |
1.807.793 |
77,03% |
139,46 |
Þýskaland |
2.960 |
693.203 |
767.567 |
18,69% |
234,19 |
|
15.841 |
3.683.239 |
3.972.101 |
100,00% |
232,51 |
Hér er svo til fróðleiks tafla yfir innflutninginn árið 2006.
Innflutningur 2006
Land
|
Þyngd
|
FOB verð
|
CIF verð
|
Hlutdeild
|
Kg. verð
|
Bandaríkin |
42 |
433.988 |
538.274 |
0,05% |
10.333,05 |
Bretland |
36.854 |
9.282.426 |
10.182.086 |
43,03% |
251,87 |
Danmörk |
31 |
86.645 |
116.897 |
0,04% |
2.795,00 |
Kanada |
1.838 |
381.295 |
414.157 |
2,15% |
207,45 |
Spánn |
10.127 |
2.510.613 |
2.951.380 |
11,82% |
247,91 |
Sviss |
14 |
13.380 |
13.661 |
0,02% |
955,71 |
Svíþjóð |
759 |
194.415 |
269.840 |
0,89% |
256,15 |
Tyrkland |
810 |
199.630 |
300.257 |
0,95% |
246,46 |
Þýskaland |
35.168 |
10.390.858 |
11.319.510 |
41,06% |
295,46 |
|
85.643 |
23.493.250 |
26.106.062 |
100,00% |
274,32 |
Hér má sjá að Bretland hefur um 43% innflutningsins en Þýskaland 41%. Önnur lönd þá þar af minna. Ef verið er að leika sér
að þessum tölum þá er innflutningur hvers innflytjanda árið 2006 á mánuði kr. 181.000 og í þyngd 595 kg. sem samsvarar 74 stykkjum af 6 kg.
dufttækjum. Í sölu tæp 4 stk. af 6 kg. tækjum á dag. Hann hefur ekki fitnað hesturinn sem riðið er hér í allmörg ár.
Við horfum til Kína þesssa dagana.