Fimmtudaginn 1. mars var ný slökkvibifreið vígð á Egilsstaðarflugvelli. Við leyfum okkur að taka frétt af
vefsíðu Flugstoða ohf. um atburðinn en því miður vegna flutninga fyrirtækisins gátum við ómögulega komið því við
að vera viðstaddir og þótti það leitt en við höfum ávallt verið viðstaddir þær gleði og ánægjustundir þegar
ný slökkvibifreið frá okkur er formlega tekin í notkun.
Í fréttinni segir eftirfarandi.
Bifreiðin er sameign Flugstoða ohf. og Brunavarna á Héraði og verður hún að jafnaði staðsett á
Egilsstaðarflugvelli, en getur sinnt almennum útköllum á Héraði enda er slökkvistöð Brunavarna Héraðs einnig staðsett við
flugvöllinn.
Nýja bifreiðin verður annarsvegar viðbragðsslökkvibifreið á Egilsstaðarflugvelli, vegna flugumferðar og
fellur því inn í alla staðla Alþjóðaflugmálastofnunarinnar og hinsvegar bifreið til almennra slökkvistarfa ss. húsabruna á
Héraði og því nauðsynlegt að bifreiðin hafi mikla drifgetu vegna ófærðar í víðfeðmu
þjónustusvæði. Hér er því um að ræða slökkvibifreið sem þjónar tveimur nokkuð ólíkum
þáttum slökkvistarfs þar sem annarsvegar er krafist mikillar viðbragðssnerpu og öflugri vatnslosun flugvallarslökkvibíls og drifmikilli bifreið
með miklu og haganlega fyrirkomnu skápa- og geymsluplássi alhliða slökkvibifreiðar.
Bifreiðin sem er af gerðinni M.A.N. er framleidd í Póllandi og er einn tæknivæddasti slökkvibíll hér á
landi. (Athugasemd okkar!! Hér er villa á ferðinni því bifreiðin er af Scania gerð).
Rekja má samstarf um rekstur slökkvibifreiðar til ársins 1993. Samstarfssamningur milli Flugmálastjórnar (nú
Flugstoða) og Brunavarna á Héraði var síðan undirritaður í september 1997.
Á vefsíðu Flugstoða erum einig myndir sem skoða má hér og hér eru allar upplýsingar um bifreiðina.
Hjartanlega til hamingju með þessa glæsilegu slökkvibifreið. Enn og aftur kemur í ljós frábær hönnun og smíði Wawraszek í
Póllandi. Þær eru nú sjö bifreiðarnar frá þeim hér á landi og í farvatninu eru fimm.