Nú erum við komin með nýjan reykskynjara sem tengist við beini (router) sem er í húsinu með þráðlausu neti (WiFi) og getur sent brunaboð í snjallsíma í gegn um internetið.
Hægt er að tengja fleiri en einn reykskynjara inn í sama hóp (heimilisfang) og einnig hægt að tengja marga síma sem fá boð frá skynjurunum.
Hægt er að vera með einn hóp skynjara í sumarbústaðnum og einn hóp skynjara á heimilinu. Hver og einn skynjari fær staðsetningu sem hægt er að nefna (t.d. stofa, gangur, bílskúr, miðrými, o.s.frv.).
- Optískur reykskynari
- App-tengjanlegur (TUYA app) þráðlaust með WiFi.
- Stærð 110 x 57,5 mm.
- Hljóðstyrkur 85 dB/3m.
- Prufu- og þöggunarhnappur og gaumljós.
- Líftíma rafhlaða (10 ára).
- WiFi þráðlausi búnaðurinn notar tvær 3V rafhlöður sem duga í 3-5 ár.
- Viðvörun er send þegar skipta þarf um rafhlöður.
- Hægt er að tengja skynjarann við fjölda síma með TUYA appi (IOS og Android).
- Auðveldur í uppsetningu.
- Við skynjun á reyk sendir hann hljóðmerki og sendir hann boð í app á símunum sem tengdir eru.
- Þráðlausi búnaðurinn notar internet tengingu og þráðlausan beini sem þarf að vera til staðar í húsinu.
Hér má finna leiðbeiningar um tengingu skynjarans við þráðlaust net og snjallsíma: Leiðbeiningar.
Hér má finna notkunarbæklinginn sem fylgir skynjaranum og er á ensku: Notkunarbæklingur.
Verðupplýsingar og pantanir eru á vefversluninni okkar: https://www.oger.is/is/vefverslun/reyk-samtengdir/anka-wifi-reykskynjari.
Upplýsingar um aðra reykskynjara má finna á vefverslun og einnig hér.
Hafið samband í síma 568 4800 eða með tölvupósti oger@oger.is.