Ný Protek úðabyssa


Ný Protek úðabyssa er komin á markað af gerðinni 620. Við höfum selt nokkuð að Protek byssum af gerðinni 622 sem er úðabyssa af svipaðri gerð. Þessi nýja skilar sömu afköstum og hefur þann möguleika að loka fyrir innganga sem eru 2 1/2" að byssunni. Ívið þyngri en 622 gerðin. Myndin sýnir aðeins eina gerð af úðastút til að hafa á byssunni. Til að auka vatnsmagnið er hægt að skrúfa hvern hólk af til að auka opnun. Fleiri gerðir sjást í bæklingi sem kemur fram með því að smella á mynd.

Protek 620 úðabyssa

Eins viljum við vekja athygli á Protek greinistykkjum sem eru mjög vönduð. Við höfum eingöngu tekið inn þýsk eða frönsk greinistykki hingað til en þessi gerð getur vel komið til greina ef hægt er að fá BSP gengjur. Hér má sjá bækling.

.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....

 

 

.