Opnun tilboða í sjúkrabifreiðar

Í morgun voru opnuð tilboð í sjúkrabifreiðar fyrir Rauða kross Íslands
Að þessu sinni voru það aðeins fimm tilboð, sem bárust frá þremur bjóðendum. Um langan tíma hefur ekki verið eins fámennt og fá tilboð.

Í fyrsta skiptið, að mig minnir var upplýst um kostnaðaráætlun en hún var á bifreið kr. 17.500.000.

Eins var í fyrsta skiptið farið fram á, að virðisaukaskattur væri innifalinn í verði. Það hefur ekki verið áður.

Taflan hér að neðan sýnir röð bjóðenda, en allir buður samskonar undirvagn þ.e. MB Sprinter með fjórhjóladrifi 319 gerð.

Undirvagn Verð % Bjóðandi Mismunur
Mercedes Sprinter 14.831.992,00 0,00% Sigurjón Magnússon ehf 0
Mercedes Sprinter 15.308.140,00 3,21% Sigurjón Magnússon ehf 476.148
Mercedes Sprinter 15.869.088,00 6,99% Sigurjón Magnússon ehf 1.037.096
Mercedes Sprinter 19.973.792,00 34,67% Ólafur Gíslason & Co hf 5.141.800
Mercedes Sprinter 20.612.155,00 38,97% RadioRaf ehf 5.780.163

Eins og sést á ofangreindu, þá er gríðarlegur munur á milli fyrstu þriggja tilboðanna og þess fjórða, sem er okkar og finnska framleiðandans Profile. Leiða má líkum, að í þrjú lægstu tilboðin vanti virðisaukann og ef svo er liti útkoman svona út eftir, að hann hefur verið reiknaður í verðið.

Undirvagn Verð % Bjóðandi Mismunur
Mercedes Sprinter 18.465.830,04 0,00% Sigurjón Magnússon ehf 0
Mercedes Sprinter 19.058.634,30 3,21% Sigurjón Magnússon ehf 592.804
Mercedes Sprinter 19.757.014,56 6,99% Sigurjón Magnússon ehf 1.291.185
Mercedes Sprinter 19.973.792,00 8,17% Ólafur Gíslason & Co hf 1.507.962
Mercedes Sprinter 20.612.155,00 11,62% RadioRaf ehf 2.146.325

Tilboðin eru fyllt út á tilboðsblað sem á stendur skýrum stöfum að VSK skuli reiknaður í verð.

Hvernig eru svona vandamál leyst ???



.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar, fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....