Ýmsar nýjungar voru í boði hjá Protek á Rauða hananum í ár. Helst voru þar nýjungar í úðabyssum (monitorum)
sjálfstýringar og þráðlausar stýringar en einnig .....
Flestar gerðir hafa verið endurbættar og kemur það fram í
bæklingi en helst skal nefna
* Ryðfríar snúningstennur
* Hnúður sem sýnir stöðu fyrir þokuúða ef hætta er á yfirtendrun
* Endingarbetri bönd sem sýna leiðbeiningar og upplýsingar
* Snúningshringur til að velja vatnsmagn (hanskavænn)+
* Möguleiki á skolun án þess að breyta stillingu
* Nýtt endurbætt handfang (opnun/lokun) með málmstyrkingu
* Ryðfrítt sigti í inntaki
* Krómhúðuð kúla til að opnun og lokun sé auðveld
* Sérlagað handfang fyrir þægilegt grip
* Hver úðastútur með sérstakt númer til auðkennis
* Auðkenni fyrir úða
Við höfum átt samskipti við Protek í yfir 10 ár og mjög ánægðir bæði hvað varðar, þjónustu, verð og
gæði. Flest slökkvilið landsins eru með úðastúta af þessari gerð, en þessir stútar haf komið bæði í Rosenbauer og
Wawrzaszek slökkvibifreiðunum okkar.
Smellið á myndina og skoðið fleiri myndir frá bás þeirra á Rauða hananum.
![](/static/files/Slokkvilid/udastutar/protek/305mynd.jpg)
Í bæklingi þeirra má sjá háþrýstistút sem framleiddur var af öðrum aðila hér á árum áður
(Unifire), en hægt er að fá frá Protek í dag. Þetta er stútur fyrir 10 til 50 bar og skilar allt að 115 l/mín. Nokkur slökkvilið eru
með þessa gerð og ef endurnýjunar er þörf þá getum við útvegað þessa gerð. Einfaldur
háþrýstistútur.
![](/static/files/Slokkvilid/udastutar/protek/305uppl.jpg)
.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar,
fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....