Scott Propak reykköfunartæki til Flugstoða

Flugstoðir hafa nú fengið Scott Propak reykköfunartæki í eina af flugvallabifreiðum sínum. Við erum nokku sáttir við þá dreifingu sem við höfum náð á skömmum tíma á nýju gerðinni af Scott reykköfunartækjunum þ.e.  þessari nýju evrópsku gerð sem reynist mjög vel eftir því sem við heyrum. Sérstaklega er tiltekið hversu gott útsýni reykafarinn hefur um grímuna enda mjög sérstakt lag á gleri. 
Tilbúin til afgreiðslu í kössunum




Tækin eru byggð upp af Scott og Sabre Contour og eru með léttustu og öruggustu reykköfunartækjum sem völ er á. Hér getur þú skoðað frekari  upplýsingar  Þau eru viðurkennd samkvæmt  prEN137: 2002 class II, ásamt því að vera prófuð við sérstakar hita og loga prófun (incorporating the stringent flame engulfment test). Viðurkennt lunga, tryggt loftflæði, 100% Kelvar vefnaður, fallhlífar sylgjur, ný gerð stillingarbands á loftkút og auðveld endurnýjun.

Scott Propak reykköfunartæki




Létt afrafmögnuð bakplata með Kelvar kútabandi (auðveld skipti á kútum) og stillanlegum fóðruðum ólum. Tvöfalt kerfi með framhjáhlaupi, mælir og 55 bara flauta. Ýmsar tengingar á lofti. Bakplata stillanleg fyrir aðrar stærðir af kútum.


Tækin eru með 46 mín léttkútum og 300 bara þrýsting. Tækin eru eins og áður sagði vönduð með Kelvar tregbrennanlegum ólum. Kútarnir eru léttkútar með 1.860 l. af lofti og vega aðeins 6,8 kg. fullhlaðnir. Þvermál 160 mm og 600 mm. langir.

Scott Propak reykköfunartæki




Líftími minnst 15 ár. Scott Propak tækin eru með Vision 3 maska og sá maski eru um margt mjög einstakur þar sem glerið er mjög kúpt og eykur útsýni miðað við aðrar venjulegar gerðir af möskum.