Davíð Rúnar slökkvistjóri Slökkviliðs Vesturbyggðar gerði athyglisverðar tilraunir með búnaði sem hentað getur vel á
sveitabæi, þar sem langt er til slökkviliðs.
Dælan mun nýtast vel er upp kemur eldur og er auðveld í notkun. Skynsamlegt er að koma upp slíkum dælum sem víðast á
sveitabæjum þar sem langt er í slökkvilið. Með þessu geta bændur byrjað slökkvistarf og ef eldur uppgötvast á byrjunarstigi
þá eru verulegar líkur á að náist að ráða við hann.
Barki, sigti, dæla, Protek háþrýstistútur og Mantex 1"háþrýstislanga
Með slíkum búnaði geta ábúendur hafið slökkvistarf og slökkt alla minni elda eða haldið eld í skefjum þar til frekari
aðstoð berst.
Dælan er með 8 m. löngum barka og frá henni eru þrjár 30 m. Mantex 1" háþrýstislöngur með D25 Storz
háþrýstitengjum. Protek 360 1" háþrýstistútur með afköst upp í 150 l/mín.
Það tekur aðeins um 2 til 4 mínútur að tengja dæluna við úttak dráttarvélar. Við prófun var dælan aðeins um 30
sekúndur að ná upp vatni. Kastlengd var um 20 m. og skilaði stúturinn 150 l/mín.
Ekkert er því til fyrirstöðu að nota búnaðinn í önnur verk eins og þif, vökvun og dælingu.
Dælan mun nýtast vel er upp kemur eldur og er auðveld í notkun.
Skynsamlegt er að koma upp slíkum dælum sem víðast á sveitabæjum þar sem langt er í slökkvilið. Með
þessu geta bændur byrjað slökkvistarf og ef eldur uppgötvast á byrjunarstigi þá eru verulegar líkur á að náist að
ráða við hann.
Hér eru myndir af tilrauninni.
Skýrslan í heild sinni.
.....Slökkvitæki, slökkvitækjaþjónusta, reykskynjarar, eldvarnateppi, brunaslönguhjól, gaskynjarar, kolsýrlingsskynjarar,
fellistigar, keðjustigar, lyfjaskápar, neyðarljós, neyðarmerki.....