Þó nokkuð er spurt um skolsturtur og spilliefnabúnað þessa dagana. Skoðið þessa síðu en þar má finna ýmsar gerðir af skolsturtum ofl. frá mörgum
framleiðendum. Eins viðjum við benda ykkur á síðu með myndbandi þar sem sýnt er hverning skolsturta er uppblásin. Sjá hér.
Fyrstu Holmatro settin í 4000 línunni með Core slöngum komu í vikunni og fóru til fyrstu kaupenda þ.e. Slökkviliðs Akraness, Hveragerðis og
Ísafjarðarbæjar.
Eins og fram hefur komið heimsóttum við Wawrzaszek verksmiðjurnar í síðasta mánuði til að skoða þær bifreiðar sem nú
fara í skip í dag og koma til landsins á miðvikudag í næstu viku.
Við höfum bætt við upplýsingum á síðuna okkar en heimsóknir hafa verið talsverðar og við finnum á viðskiptavinum okkar að
þetta er að koma sér vel.
Efst á síðunni núna er kominn vörulisti (sænskur) en í honum eru flýtihnappar og á hann að auðvelda viðskiptavinum aðgengi
að upplýsingum um þau sprengiefni og fylgihluti sem við getum boðið.