Enn eitt árið komumst við á lista yfir framúrskarandi fyrirtæki. Við erum eitt af þeim 75 sem hafa verið á þeim lista frá upphafi. Við eigum viðskiptavinum okkar þetta að þakka.
Við vorum að afgreiða frá okkur mjög stóra sendingu af Interspiro Incurve E reykköfunartækjum (Spiroguide) ásamt S-Mask möskum og Spirocom XXL fjarskiptum fyrir Tetra MTP3250.
Nú í vikunni kom til landsins ný slökkvi og björgunarbifreið fyrir Slökkvilið Norðurþings. Bifreiðin er byggð hjá Wawrzaszek í Bielsko Biala Póllandi. Við óskum Slökkviliði Norðurþings hjartanlega til hamingju.
Við höfum afgreitt frá okkur Interspiro reykköfunartæki til nýs viðskiptavinar. Tækin eru af Incurve gerð og maskar InspireH ásamt fjarskiptum. Fjarskiptin eru um Motorola DP4400e talstöðvar.
Á laugardag var afhent söfnunarfé til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna sem Team Rynkeby safnaði með 1300 km hjólaferð frá Kolding í Danmörku til Parísar. Við vorum þáttakendur og styrktaraðilar.
Í lok ágúst sóttum við tveir hér námskeið hjá Holmatro þar sem farið var yfir notkun, aðferðir og tæki og tól frá Holmatro. Í lok október fara svo tveir á Holmatro viðgerðar og þjónustunámskeið og verða þá fjórir þjónustuaðilar hérlendis.