Fréttir

Námskeið í björgunartækni hjá ICET.

Í lok október fóru 5 íslenskir slökkviliðsmenn á námskeið í klippu- og björgunartækni hjá ICET í Hollandi. Námskeiðið sem var tvískipt og stóð í 5 daga var sérstaklega sett upp fyrir þennan íslenska hóp og þótti takast mjög vel. Þeir sem fóru til ICET að þessu sinni eru Friðrik Axel Þorsteinsson SHS, Rúnar Helgason SHS, Sigurður Hólm Sæmundsson Slökkviliði Akureyrar, Haukur Ingimarsson og Sigurður Skarphéðinsson frá Brunavörnum Suðurnesja.
Lesa meira

FirePro slökkvibúnaðurinn er kominn.

FirePro slökkvibúnaðurinn er m.a. í sjónvarpstæki og margs konar önnur tæki og rými.
Lesa meira

Flugmálastjórn afhentar nýjar Rosenbauer slökkvibifreiðar

Flugmálastjórn afhentar nýjar Rosenbauer flugvallaslökkvibifreiðar
Lesa meira

Um 850 milljóna tjón vegna rafmagnsbruna

Frétt af vef Morgunblaðsins í morgun. (19/11 2002) Áætlað er að brunar af völdum rafmagns hafi verið 887 í fyrra og eignatjón vegna þeirra hafi numið 850 milljónum króna. Sex af hverjum tíu brunum af völdum rafmagns urðu í íbúðarhúsnæði. Í hátt í helmingi tilvika varð eldur laus vegna rangrar notkunar en í rúmum 42% tilvika var orsökin bilun eða hrörnun í búnaðinum sjálfum.
Lesa meira

Brunamálastofnun endurnýjar reykköfunartækin.

Í ólund og óstuði í tiltekt á skrifstofu minni kom ég að grein í Morgunblaðinu frá 12. mars á þessu ári en þar sagði frá samningi sem tæknideild Brunamálastofnuar ríkisins hafði nýverið gert við ákveðna slökkvitækjaþjónustu. Fól samningurinn í sér kaup á 11 reykköfunartækjum og viðhald á þeim. Hér var um endurnýjun á öllum reykköfunartækjum stofnunarinnar eins og segir í greininni.
Lesa meira

Class A slökkvifroða

Nokkuð hefur verið rætt um slökkvifroðu af gerðinni Class A undanfarið. Okkur hefur borist fróðleg grein eftir starfsmann TFT (Task Force Tips) í Bandaríkjunum en greinin heitir ,,Allt sem þig langar að vita um Class A slökkvifroðu en hefur ekki vitað hvern ætti að spyrja ’’. Hér eru 12 spurningar og svör.
Lesa meira

Öflugasta og stærsta slökkvibifreiðin komin á Reykjavíkurflugvöll

Undirvagn er af gerðinni MAN 27.414 DFAC 6x6 410 hestafla vél. Sexhjóla, sjálfskiptur, drifin með sídrifi, driflæsing framan og aftan, ABS hemlum, einfalt ökumannshús með rými fyrir 2 menn þar af 1 í stól með reykköfunartækjum.
Lesa meira

Ný gerð slökkvitækja í tilefni opnun slökkvitækjaþjónustumiðstöðvar.

Um miðjan október munum við bjóða nokkrar gerðir slökkvitækja á mjög svo góðu verði í tilefni opnunar slökkitækjaþjónustumiðstöðvar. Tækin eru frá Bretlandi en frá þessum framleiðanda höfum við keypt slökkitækjavagna þ.e. duft og kolsýruvagna. Eins höfum við fengið frá houm neyðarlýsingar og úðakerfi.
Lesa meira

Opnun slökkvitækjaþjónustumiðstöðvar.

Í október opnum við þjónustumiðstöð fyrir slökkvitæki í húsnæði okkar. Við erum komnir með öfluga duftvél, kolýruáfyllingarvél einnig fyrir patrónur, þrýstiprófunarvél fyrir kolsýrutæki ásamt ýmsum handverkfærum og öðrum nauðsynlegum búnaði frá Fritz Emde í Þýskalandi en frá þeim framleiðanda höfum við selt flest allar áfyllingarvélar fyrir slökkvitækjaþjónustur víðs vegar um landið.
Lesa meira

Stærra húsnæði

Við höfum stækkað húsnæði okkar í Sundaborg og er nú rúmbetra sýningarsvæði fyrir eldvarnarvörur og sérhæfðan búnað fyrir slökkviliðin ásamt því að lagerrými er mun stærra. Við vonum að með þessu aukist þjónusta og bjóðum viðskiptavini okkar velkomna.
Lesa meira